Heimilt er að opna tækjasali líkamsræktastöðva í dag 8. febrúar að uppfylltum ítarlegum skilyrðum. Eftirfarandi notkunarleiðbeiningar fyrir líkamsræktir Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar eru unnar úr minnisblaði sóttvarnalæknis.

1. Notendur eru beðnir að hringja í íþróttamiðstöð Siglufirði í síma 4649170 og Íþróttamiðstöð Ólafsfirði í síma 4649250 og skrá sig í tíma fyrirfram. Upplýsingar um tímatöflu eru í afgreiðslu.  Fyrsti tíminn hefst kl. 6:30 og næsti þar á eftir kl. 8:00.

 2. Við komu í hús sé tryggt að allir sótthreinsi hendur og beri grímur þar til æfing hefst og eftir að henni lýkur.

 3. Hámark 10 mega vera í tækjasal í einu þannig að tryggja megi 2ja metra fjarlægðartakmörk og ekki verður opið í öll upphitunartæki.

 4. Notendur sótthreinsa sinn búnað eftir notkun.

 5. Hver tími er að hámarki 60 mín og viðvera hvers iðkanda í húsi sé því aldrei lengri en 90 mínútur.

6. Starfsfólk tekur auka þrif eftir hvern tíma eftir þörfum.

 7. Ekki er hægt að hafa ræktina opna allan daginn á Ólafsfirði vegna notkunar skólanna.

 8. Starfsfólk íþróttamiðstöðva sótthreinsar ítarlega nokkrum sinnum yfir daginn eftir þörfum. 

 9. Engir tveir tímar liggja saman svo tveir hópar eru ekki að mætast í rýmum hússins, eins og t.d. í anddyri. 

 10. Munum að það er okkur í hag að fara eftir sóttvarnarreglum.