Litla upplestrarkeppnin hjá 5. bekk í Grunnskóla Fjallabyggðar var haldin þriðjudaginn 28. maí í salnum á Norðurgötunni.

Alls tóku 10 nemendur úr bekknum þátt. En þeir lásu allir brot úr bókinni Kennarinn sem hvarf eftir höfundinn Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og svo valdi hver nemandi sér eitt ljóð til að flytja fyrir skólann.

Allir nemendurnir stóðu sig vel og fengu viðurkenningu fyrir þátttöku. En einn nemandi bar sigur úr býtum og var það hann Óli Björn Þorvaldsson.

Hann fékk bókina Kennarinn sem sneri aftur eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur. Vonandi verður þetta hvatning fyrir yngri bekkina að standa sig vel í lestri, en þeir hlustuðu vel og sýndu tillitssemi á keppninni.

Sjá myndir frá upplestrarkeppninni: HÉR