Í ljósi neyðarstigs almannavarna vegna COVID-19 mun Heilbrigðisstofnun Norðurlands tímabundið loka almennri móttöku. Læknir eða hjúkrunarfræðingur geta þó eftir símasamband við skjólstæðing bókað tíma ef það er talið nauðsynlegt. Fólki er því bent á að hafa fyrst samband í síma við heilsugæsluna. Þetta er gert til að draga úr smithættu skjólstæðinga sem og starfsfólks.
Mun stofnunin efla fjarþjónustu á öllum starfsstöðvunum.
Haft verður samband við alla þá sem eiga pantaðan tíma og reynt að leysa erindið símleiðis.
Fólki sem í neyð leitar á heilsugæslu er alltaf sinnt en annars er bent á að hringja í 112.
Ungbarnavernd, mæðravernd og heilsuvernd skólabarna verður áfram en þar má einnig búast við breytingum og verður það þá tilkynnt.
Á HSN á Akureyri er lokað á sama hátt almennri móttöku og vaktmóttöku.
Öllum sem þurfa á vaktþjónustu að halda er bent á að hafa samband við heilsugæsluna í síma 432-4600. Símsvörun er allan daginn frá kl. 8-18 og um helgar kl. 10-14. Í einhverjum tilvikum er viðkomandi stefnt í skoðun eftir það.
Nýjustu leiðbeiningar um starfsemi og símanúmer á hverjum stað eru á heimasíðunni.