Starfsmaður Grunnskóla Húnaþings vestra hefði greinst með COVID-19.  Í samráði við fulltrúa almannavarna og sóttvarnalæknis fellur skólahald niður um óákveðinn tíma.

Foreldrar og starfsmenn þess bekkjar sem viðkomandi starfsmaður starfar í verða látnir vita um þær ráðstafanir sem gera þarf en starfsmaðurinn er ekki alvarlega veikur.

Það verður því ekkert skólahald, miðvikudag 18. mars. Farið verður yfir stöðuna með fulltrúum sóttvarnalæknis og foreldrar og starfsmenn upplýstir í kjölfarið um framhaldið.