Í ljósi neyðarstigs almannavarna vegna COVID-19 mun Heilbrigðisstofnun Norðurlands tímabundið loka almennri móttöku. Læknir eða hjúkrunarfræðingur geta þó eftir símasamband við skjólstæðing bókað tíma ef það er talið nauðsynlegt. Fólki er því bent á að hafa fyrst samband í síma við heilsugæsluna. Þetta er gert til að draga úr smithættu skjólstæðinga sem og starfsfólks.

Mun stofnunin efla fjarþjónustu á öllum starfsstöðvunum. 
Haft verður samband við alla þá sem eiga pantaðan tíma og reynt að leysa erindið símleiðis.

Fólki sem í neyð leitar á heilsugæslu er alltaf sinnt en annars er bent á að hringja í 112.

Ungbarnavernd, mæðravernd og  heilsuvernd skólabarna verður áfram en þar má einnig búast við breytingum og verður það þá tilkynnt.

Á HSN á Akureyri er lokað á sama hátt almennri móttöku og vaktmóttöku.

Öllum sem þurfa á vaktþjónustu að halda er bent á að hafa samband við heilsugæsluna í síma 432-4600. Símsvörun er allan daginn frá kl. 8-18 og um helgar kl. 10-14. Í einhverjum tilvikum er viðkomandi stefnt í skoðun eftir það.

Nýjustu leiðbeiningar um starfsemi og símanúmer á hverjum stað eru á heimasíðunni.