Efnt verður til fjölskylduhátíðarinnar Einnar með öllu um helgina á Akureyri og fjallahlaupsins Súlur Vertical.

Þess er vænst að fjöldi fólks sæki bæinn heim og af þeim sökum og vegna ýmissa viðburða þarf að loka ákveðnum götum á miðbæjarsvæðinu tímabundið og takmarka umferð ökutækja annars staðar.

Og sunnudaginn 31. júlí verður hinn svokallaði Skógardagur í Kjarnaskógi. Búist er við góðri aðsókn og því er gott að skoða kortið hér að neðan til að sjá hvar má leggja og hvernig hægt er að komast inn á bílastæðin og frá þeim.

Kort/Akureyrarbær