Kjör íþróttamanns Dalvíkurbyggðar fór fram við hátíðlega athöfn í Bergi fimmtudaginn 12. janúar. Það var blakkonan Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir sem hreppti titilinn í ár. Lovísa Rut hefur stundað blak með KA undanfarið ár.

Lovísa varð Íslandsmeistari, Bikarmeistari og Deildarmeistari í blaki með KA á síðasta keppnistímabili. Hún spilaði alla leiki KA á síðustu leiktíð og það sem af er á þessari leiktíð.

Hún hefur æft með U20 landsliðinu og var einnig valin í æfingahóp hjá A-landsliðinu. Lovísa hefur sýnt mikinn metnað og dugnað við æfingar sem hefur skilað sér í þessum góða árangri. Innilega til hamingju Lovísa Rut.

Aðrir tilnefndir voru eftirtaldir aðilar:

  • Anna Kristín Friðriksdóttir – Hestar
  • Elín Björk Unnarsdóttir – Sund
  • Esther Ösp Birkisdóttir – Skíði
  • Marsibil Sigurðardóttir – Golf
  • Þröstur Mikael Jónasson – Knattspyrna

Einnig voru við þetta tækifæri afhentir styrkir til iðkenda og voru þeir afhentir í eftirfarandi röð:

  • Hafsteinn Thor Guðmundsson 75.000 vegna ástundunar og árangurs í golfi
  • Brynjólfur Máni Sveinsson 75.000 vegna ástundunar og árangurs á skíðum
  • Dagur Ýmir Sveinsson 125.000.- vegna ástundunar og árangurs á skíðum
  • Torfi Jóhann Sveinsson 75.000.- vegna ástundunar og árangurs á skíðum
  • Bil Guðröðardóttir 125.000.- vegna ástundunar og árangurs í Hestamennsku
  • Sundfélagið Rán 135.000.- vegna sundnámskeiðs fyrir fullorðna og afmælishátíðar

Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar fékk þá einnig 150.000. styrk úr afreks- og styrktarsjóði í ár.