Húnasjóð stofnuðu hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra.

Samkvæmt skipulagsskrá fyrir Húnasjóð sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 12. október 2000 skal sveitarsjóður leggja sjóðnum árlega til fé skv. fjárhagsáætlun hverju sinni. Árlegu framlagi Húnaþings vestra ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls skal úthluta í styrki á ári hverju.

Húnaþing vestra auglýsir nú eftir umsóknum um styrk vegna ársins 2021, en umsóknir skulu fram með rafrænum hætti HÉReða undir umsóknum & eyðublöðum á heimasíðu sveitarfélagsins. Umsóknum skal skilað inn í síðasta lagi 8. júlí nk.

Úthlutunarreglur Húnasjóðs má finna HÉR og í flokknum reglugerðir og samþykktir á heimasíðu sveitarfélagsins, undir fjármála- og stjórnsýslusviði.