Marinó Flóvent Birgisson er lærður bakari og vann við það í 18 ár hér á árum áður og hefur nú tekið upp sleifina aftur og bakar nú fyrir kaffihús í Reykjavík í hlutastarfi.

Ásamt því að halda úti YouTube rásinni Majó Bakari  ( https://www.youtube.com/majobakari ) sem er á íslensku og að mestu leyti um súrdeigsbakstur.

Að þessu sinni birtir Trölli.is Youtube myndband Marinós Flóvents um bakstur fjölkorna súrdeigsbrauðs.

Sjá frétt: MARINÓ FLÓVENT BAKARI ER ÆTTAÐUR FRÁ SIGLUFIRÐI

Mynd/skjáskot úr myndbandi