MAJÓ – Food and Culture er ástríðuverkefni hjónanna Magnúsar Jóns Magnússonar frá Ólafsfirði og Jónínu Bjargar Helgadóttur.

Majó er starfrækt í elsta húsi á Akureyri, Laxdalshúsi, þar sem Jónína Björg er með myndlistavinnustofu og vinnur að sinni listsköpun.

Þar eru þau líka með opinn lítinn veitingastað nokkra daga í mánuði þar sem Magnús græjar fyrir gesti dýrindis sushi ásamt fleiru og Jónína framreiðir, innan um alla myndlistina.

Mynd/af vefsíðu Fiskidagsins mikla