Á 243. fundi Skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar sem haldinn var 13. ágúst sótti Markaðsstofa Ólafsfjarðar um afnotarétt af lóðinni Aðalgötu 3 í Ólafsfirði.
Ætlunin er að setja upp söguskilti þar sem fjallað yrði um mannlíf og sögu Ólafsfjarðar í máli og myndum.
Nefndin heimilar Markaðstofu Ólafsfjarðar afnot af lóðinni til þriggja ára.