Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, var veitt í sextánda sinn miðvikudaginn 26. febrúar við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Frú Eliza Reid, forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar afhenti verðlaunin og var það Skjaldborg – Hátíð íslenskra heimildarmynda á Patreksfirði sem hlaut viðurkenninguna að þessu sinni. Aðstandendur hátíðarinnar voru að vonum hæstánægðir þegar þær tóku á móti viðurkenningunni og verðlaunafé að upphæð 2.000.000 kr., enda í þriðja sinn sem hátíðin kemst á Eyrarrósarlistann.

Auk Skjaldborgar hlutu Kakalaskáli og Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði formlega tilnefningu til verðlaunanna. Hvort verkefnið um sig fær í sinn hlut verðlaunafé að upphæð 500.000 kr.

Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar, Byggðastofnunar og Air Iceland Connect.


Heimild og mynd: Listahald.is