Ný akstursáætlun skólarútu tekur gildi í dag, mánudaginn 21. ágúst.   

Almennir farþegar eru velkomnir í skólarútu ef sæti eru laus en nemendur grunnskóla, menntaskóla og starfsfólk sveitarfélagsins ganga fyrir sætum, í þessari röð.

Skólasetning verður í Grunnskóla Fjallabyggðar miðvikudaginn 23. ágúst. Rútuferðir vegna skólasetningar verða eftirfarandi:

Frá Ólafsfirði kl. 9:00 og frá Siglufirði kl. 11:00
Frá Siglufirði kl. 9:30 og frá Ólafsfirði 11:30