Þátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir er á dagskrá FM Trölla á morgun, föstudaginn 1. mars, kl. 8.

Stjórnandi þáttarins er Oskar Brown og hann sendir þáttinn út í beinni útsendingu frá Stúdíói 7 á Englandi.

Oskar spilar frábæra tónlist úr öllum áttum, kíkir á forsíður blaðanna, bæði á Íslandi og í Bretlandi, skoðar veðurspánna fyrir helgina, og býður hlustendum að taka þátt í hressilegri morgunleikfimi.

Endilega hlustið á Egg, Beikon og Bakaðar Baunir á FM Trölla, á föstudagsmorgnum frá klukkan 8 til 10.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.