Opinn verktakafundur verður haldinn í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík, þriðjudaginn 5.mars kl.17:00.

Á fundinum verður farið yfir helstu verkefni ársins 2024 hjá sveitarfélaginu, bæði verður farið yfir nýframkvæmdir sem og viðhaldsframkvæmdir. 

Einnig verður farið yfir verkáætlanir, verktíma og fyrirkomulag útboða og/eða verðkannana.