Húnaþing vestra auglýsir eftir aðila, félagasamtökum eða einstaklingum sem eru reiðubúnir að taka að sér umsjón með undirbúningi og framkvæmd hátíðarhalda á Hvammstanga á þjóðhátíðardaginn 17. júní 2024.

Áhugasamir skili umsóknum þar um til Tönju Ennigarð, íþrótta- og tómstundafulltrúa tanja@hunathing.is eða skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 11. mars nk.

Í umsókn komi fram hugmyndir umsækjanda um dagskrá og annað er lítur að framkvæmd hátíðarhaldanna.

Mynd/ Guðmundur Jónson