Stökkar sætkartöflufranskar og köld sósa sem passar með öllu

Hitið ofninn í 130° og skerið sætu kartöflurnar niður í franskar. Dreifið úr þeim á bökunarplötu klædda bökunarpappír og bakið í um 40 mínútur án þess að hafa olíu eða krydd á þeim.

Takið þær síðan úr ofninum, sáldrið ólífuolíu yfir og kryddið eftir smekk. Hækkið hitann á ofninum upp í 200-220°og bakið kartöflurnar aftur í um 20 mínútur.

Köld sósa

Hrærið saman sýrðum rjóma og sweet chilli sósu. Byrjið með ca 2 msk á móti einni dós af sýrðum rjóma og smakkið ykkur áfram.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit