Kaffidagur Siglfirðingafélagsins verður haldinn sunnudaginn 17. október kl. 14:00
Dagurinn hefst með messu í Grafarvogskirkju kl.14:00 og í framhaldinu eru kaffiveitingar kl. 15:00.

Ræðumaður er Alma Möller landlæknir, prestar eru Vigfús Þór Árnason, Arnfríður Guðmundsdóttir, Hólmfríður Ólafsdóttir og Díana Ósk Óskarsdóttir.

Siglfirsku tenórarnir Hlöðver og Þorsteinn Sigurðssynir syngja vel valin Vísis lög ásamt karlakórnum Voces Masculorum.

Fimmtudaginn 28. október verður aðalfundur Siglfirðingafélagsins, sjá auglýsingu hér að neðan.