Stofnanir ársins 2025 eru Félagsmiðstöðin Vígyn – Víkurskóla, Gló stuðningsfélag, Hitt Húsið, Leikskólinn Gullborg, Menntaskólinn á Egilsstöðum, Menntaskólinn á Tröllaskaga og Menntaskólinn í Kópavogi. Hástökkvarar ársins eru Menntaskólinn í Reykjavík og Skammtímadvöl Árland.
Niðurstöður í vali á Stofnun ársins 2025 voru tilkynntar á hátíð Sameykis 12. febrúar 2026 en titlana Stofnun ársins – ríkisstofnanir, Stofnun ársins – borg og bær og Stofnun ársins – sjálfseignastofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í þeim níu þáttum sem könnunin byggir á að mati starfsfólks þeirra. Um er að ræða mat á innra starfsumhverfi stofnana og starfsstaða.
Þættirnir níu eru trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti.
Þátttakendur hafa aldrei verið fleiri í Stofnun ársins en nú, en í ár tóku tæplega 18.000 þátt í könnuninni, þar af voru rúmlega 11.000 svör frá starfsfólki ríkisstofnana, ríflega 6.000 svör frá starfsfólki Reykjavíkurborgar og ríflega 800 svör frá öðrum vinnustöðum. Svarhlutfall, gildir listar af endanlegu úrtaki, var tæplega 52%, sem er sama hlutfall og á síðasta ári. Við gerð þátttökulista var miðað við að starfsfólk sem fékk könnunina senda væri starfandi í ágúst og október og væri í að lágmarki 20% starfshlutfalli.
Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til um 35.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að umbótum í stjórnun og starfsumhverfi. Að lokum veitir könnunin aðhald til hagsbóta fyrir starfsfólk, skjólstæðinga, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.
Ábyrgð á könnuninni er eftirfarandi:
- Aðaltöflur – Borg og bær
- Aðaltöflur – Ríki
- Aðaltöflur – Sjálfseignarstofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu
- Vinningshafar – Borg og bær
- Vinningshafar – Ríki
- Vinningshafar – Sjálfseignarstofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu
- Framkvæmd könnunar
- Niðurstöður í sérriti PDF
- Viltu vita meira?
- Happdrætti Stofnun ársins 2025
- Málþing um Vellíðan og virkni á vinnumarkaði sem haldið var 12. febrúar 2026
- Samanburður við almenna vinnumarkaðinn



