Sterk staða kennaranáms þrátt fyrir áskoranir í greininni
Metfjöldi umsókna er í framhaldsnám í Viðskiptafræðideild. Þar talar framhaldsnám í stjórnun til umsækjenda en námið er 100% fjarnám. Þar fjölgar umsóknum um 70% milli ára. Þá er líka afar jákvætt að sjá að í allri umræðunni um yfirvofandi kennaraskort og dvínandi áhuga á kennaranámi er aukning umsókna í Kennaradeild hátt í 30% og metfjöldi frá upphafi.
Metumsóknir endurspegla traust til háskólans
„Háskólinn á Akureyri hefur vaxið ört á undanförnum árum og á starfsfólk þar stóran þátt sem hefur lagt mikið á sig við að byggja upp nám þar sem gæði og metnaður hafa ætíð verið í forgangi. Við gerum okkur grein fyrir því að slíkri aukningu fylgja áskoranir en ég er handviss um að við stöndum undir þeim. Þegar upp er staðið erum við þakklát fyrir traustið sem okkur er sýnt og ég held ég tali fyrir hönd allra þegar ég segi að við erum spennt að taka á móti nýjum stúdentum sem hyggjast hefja hér nám í haust,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri.
Sérstaða háskólans
Afar jákvætt er hve vel er tekið í þær námsleiðir sem einungis eru kenndar við Háskólann á Akureyri. Háskólinn hefur skapað sér ákveðna sérstöðu hér á landi með námsleiðum á borð við líftækni, félagsvísindi, fjölmiðlafræði og iðjuþjálfunarfræði. Þá er Háskólinn á Akureyri eini háskóli landsins sem býður upp á nám til BS prófs í sjávarútvegsfræði og aukast umsóknir þar um 55% á milli ára.
Mynd/ HA