Skólastarfið við Menntaskólanum á Tröllaskaga er nú komið í fullan gang og nemendur og starfsfólk fegin að koma til starfa eftir gott jólafrí. Nemendur hafa aldrei verið fleiri í en á þessari önn eða 572 talsins.

Vetur konungur hefur gert vart við sig á Tröllaskaga síðustu daga. Á þriðjudag var vegurinn um Ólafsfjarðarmúla opnaður um kl. 11 og hafði þá verið lokaður í sólarhring. Einn kennari, búsettur á Dalvík komst ekki heim vegna þessa og nokkrir kennarar og nemendur sem búsettir eru á Akureyri og Dalvík komust ekki í skólann morguninn eftir.

Miðvikudaginn 11 janúar var búið að opna og aflýsa hættuástandi í Múlanum og óvenju margir kennarar voru mættir í skólann eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Mynd/SMH
Heimild/MTR