Á nýmáluðu kolsvörtu sviði og með nýjum sviðsbúnaði, sem hvort tveggja gefur leikhúsgestinum tækifæri á frábærri leikhús upplifun, í Félagsheimili Hvammstanga setjum við upp ævintýrið um Snædrottninguna.
Kári er besti vinur Gerðu. Kári er munaðarleysingi en býr hjá ömmu hennar Gerðu. Hann hefur alltaf saknað mömmu sinnar og þegar hann hittir Snædrottninguna fyrst, fær hann á tilfinninguna að þar sé móðir hans kannski komin. Snædrottningin kastar á hann álögum og fer með hann heim í íshöll sína. Gerða lendir í klóm ræningjanna á leiðinni og alls óvíst að hún sleppi heil á höldnu frá ræningjaforingjanum.
Mun hún ná að bjarga Kára?
Ekki missa af frábæru tækifæri til að sjá heimsfrumsýningu af nýrri leikgerð á þessu vinsæla ævintýri H.C. Andersen, sem var innblástur fyrir höfunda Narníu saganna, Frozen, og margra annarra barnaævintýra.
Sýningarnar eru:
7. des kl 19 (heimsfrumsýning)
2. sýning – 8. des kl. 19
3. sýning – 9. des kl 17
Sýnt í Félagsheimilinu Hvammstanga
Miðaverð er 3000kr, 2700kr í forsölu til og með 1.desember 2018. Miðasala fer fram á vef Leikflokks Húnaþings vestra, www.leikflokkurinn.is/midar einnig verða miðar til sölu á jólamarkaðnum á Hvammstanga þann 1.desember jólamarkaðurinn er opinn frá 12:00 til 17:00
Fylgist með okkur á Facebook.
Leikflokkur Húnaþings vestra.