Í ágúst 2020 voru 682 íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 1.641 vegabréf gefin út í ágúst 2019. Fækkaði því útgefnum vegabréfum um 58% milli ára.

Hér má sjá töflu yfir fjölda útgefinna almennra vegabréfa eftir mánuði frá 2011.
 
Þjóðskrá Íslands annast útgáfu vegabréfa auk nokkurra annarra skilríkja. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skjáskot/Hagstofa Íslands