Milljón dollara spaghetti
- 450 gr nautahakk (eða 1 bakki)
- 1 dós pastasósa
- 225 gr rjómaostur
- 1/4 bolli sýrður rjómi
- 225 gr kotasæla
- 110 gr smjör
- 225 gr spaghetti
- rifinn cheddar ostur
Hitið ofninn í 180°.
Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum á pakkningu. Hrærið saman rjómaosti, sýrðum rjóma og kotasælu þar til það hefur blandast mjög vel.
Steikið nautahakkið á pönnu og kryddið eftir smekk. Hellið vökvanum frá og brúnið hakkið vel. Hellið pastasósu yfir og látið sjóða við vægan hita í smá stund.
Leggið smjörklípur í botninn á eldföstu móti (ef smjörið er kalt er gott að nota ostaskera í verkið). Setjið helminginn af spaghettíinu í botninn á eldfasta mótinu. Hellið rjómaostablöndunni yfir spaghettíið og dreifið vel úr henni.
Setjið afganginn af spaghettíinu yfir rjómaostablönduna, leggið nokkrar smjörklípur yfir og endið á að hella hakksósunni yfir spaghettíið. Dreifið vel úr hakksósunni og bakið í 30 mínútur. Eftir 30 mínútur er rétturinn tekinn úr ofninum og rifnum cheddar osti dreift yfir. Setjið réttinn aftur í ofninn í 15 mínútur.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit