Íbúar Fjallabyggðar hafa tekið mjög vel í heimsendingar Krónunnar, en það er heimsending í boði fjóra daga vikunnar til íbúa Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og Dalvíkurbyggðar segir Freyja Leópoldsdóttir Forstöðumaður markaðsmála hjá Krónunni í svari við fyrirspurn Trölla.is.

Bílarnir hafa þeir allir verið fullnýttir hingað til og upplifun þeirra viðskiptavina sem við höfum heyrt í er frábær og almennt mjög mikil ánægja með þessa þjónustu segir Freyja.

Á vefsíðu Krónunnar segir:

Krónan – holl, fersk og snjöll lágvöruverðsverslun

Krónan – holl, fersk og snjöll lágvöruverðsverslun
Á hverjum degi – allan ársins hring keppumst við, starfsfólk Krónunnar, við að koma réttu vöruúrvali til þín á eins ódýran hátt og mögulegt er.

Vissirðu að við förum að meðaltali fjórum sinnum í viku að versla mat úti í búð? Við viljum að hver verslunarferð sé ánægjuleg upplifun og leggjum metnað í að bjóða upp á mjög fjölbreytt vöruúrval.

Afgreiðslulausnir fyrir öll

Stundum viljum við gefa okkur tíma í verslunarferðina. Á öðrum stundum viljum við komast inn og út á sem stystum tíma og sleppa við mögulegar raðir. Ekkert mál! Hægt er að klára innkaupin á beltakassa, í sjálfsafgreiðslu eða í Skannað og skundað snjalllausninni okkar. Þitt er valið!

Við viljum að öllum líði vel í okkar verslunum – krakkar fá ókeypis ávöxt til að japla á á meðan þú tínir vörur í körfuna. Allt til þess að gera verslunarferðina auðvelda og fljótlega en líka áhugaverða og skemmtilega.

Minni umhverfisáhrif – grænni framtíð

Við erum stöðugt að huga að úrbótum í okkar starfsemi til að minnka umhverfisáhrif – og trúum því að í samvinnu við viðskiptavini og þjónustuaðila getum við sífellt bætt okkur og saman byggt grænni framtíð.

Krónan leggur áherslu á þrjá megin umhverfisþætti í rekstri sínum; draga úr matarsóun, spara orku og að minnka umbúðir. Við höfum náð árangri á öllum þessum sviðum og erum fyrstu íslensku svansvottuðu dagvöruverslanirnar.

Krónan í hnotskurn

Krónan er lágvöruverðsverslun sem leggur áherslu á ferskvöru. Krónuverslanir hafa verið starfræktar á Íslandi síðan árið 2000. Krónan er hluti af móðurfélaginu Festi, sem er leiðandi afl í smásölu á Íslandi. Hjá Krónunni starfa um þúsund manns og öll félög Festi eru með jafnlaunavottun VR, sem þýðir að starfsfólk sem vinnur jafn verðmæt störf fær jafnmikið greitt.