Mennta- og barnamálaráðuneytið boðar fjölmiðla á morgunverðarfund um nýja framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar fyrir árin 2023 til 2027 á morgun, mánudaginn 14. ágúst kl. 8:30–10:00 í Nauthóli. Á fundinum verða kynntar tillögur að aðgerðum og fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda.

Dagskrá

8:30 Morgunverður

8:45 Ávarp mennta- og barnamálaráðherra

8:55 Framkvæmdaáætlun um barnavernd

        Hlín Sæþórsdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu

9:25 Fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda

        Funi Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Barna- og fjölskyldustofu

        Arnar Haraldsson, ráðgjafi hjá HLH ráðgjöf

9:45 Umræður

Fundurinn verður einnig sendur út í streymi.

Framkvæmdaáætlunin miðar að því að börn verði í öndvegi í allri nálgun. Hún leggur áherslu á mannréttindi og samfélagsþátttöku barna og að hver og ein aðgerð í áætluninni taki mið af öllum börnum óháð kynþætti, þjóðerni, trú, lífsskoðun, fötlun og kynhneigð. Nánari upplýsingar um framkvæmdaáætlunina er að finna í samráðsgátt stjórnvalda.

Við undirbúning áætlunarinnar var haft víðtækt samráð við helstu hagsmunaaðila um áherslur og forgangsröðun verkefna. Var þetta í fyrsta sinn sem börn voru þátttakendur í samráði við undirbúning framkvæmdaáætlunar á sviði barnaverndar. Litið var sérstaklega til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Þingsályktunartillaga um framkvæmdaáætlunina verður lögð fyrir Alþingi í haust.

Síðasta sumar skipaði Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, stýrihóp um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Tillögur stýrihópsins verða einnig kynntar á fundinum. Þeim er ætlað að tryggja að börn hafi aðgang að viðeigandi úrræðum þegar þeirra er þörf.