Framtalsskil standa nú yfir
Framtalsfrestur er til 14. mars. Netframtal einstaklinga 2022 er að finna á www.skattur.is.
Framtalið er aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins, www.skattur.is og má nú finna einfaldar framtalsleiðbeiningar á fimm tungumálum, íslensku, ensku, spænsku, pólsku og litháísku.
Skatturinn hvetur framteljendur eindregið til að nota rafræn skilríki við framtalsskilin. Rafræn skilríki eru almennt álitin öruggasti auðkenningarmáti sem framteljendum býðst í dag.