Múslíbrauð með fræjum, kornum og öðru góðgæti
- 4 dl hveiti
- 3 1/2 dl heilhveiti
- 3 1/2 dl múslí (ég var með Organic basic muesli frá Crispy Food)
- 1 dl graskersfræ
- 1 1/2 dl fimmkornablanda
- 2 1/2 dl solkjarnafræ
- 1 1/2 dl rúsínur
- 1 tsk maldon salt
- 3 msk fljótandi hunang
- 1 msk vínsteinslyftiduft (má líka nota venjulegt lyftiduft)
- 2 dl vatn
- 7 dl ab-mjólk
Hitið ofninn í 200°. Blandið þurrefnum saman í skál. Setjið hunang, vatn og ab-mjólk saman við og hrærið öllu varlega saman. Látið deigið í smurt brauðform eða formkökuform og bakið í ca 55-60 mínútur.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit