Matvælastofnun varar við Sportmix original cat food kattafóðri frá Midwestern pet food í 6,8kg pokum vegna aflatoxín myglueiturs.

Fyrirtækið Pak ehf. hefur innkallað fóðrið með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópavogs.

Fóðrið var tekið úr netsölu í lok desember og haft samband við kaupendur. 

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vöruheiti: Sportmix original cat food
  • Þyngd: 6,8 kg (15 lbs)
  • Framleiðandi: Midwestern pet foods
  • Lotunúmer: Allar dagsetningar fyrir eða 07.09.22/ lotunúmer 07092021L3 05
  • Framleiðsluland: Bandaríkin
  • Innflytjandi: Pak ehf., Strandgata 32, 220 Hafnarfirði
  • Dreifing:  https://www.litlagaeludyrabudin.is/netverslun/