Talsverð úrkoma hefur fallið á norðanverðu landinu síðustu tvo sólarhringa, úrkoma hefur mikið til fallið sem snjór til fjalla og rigning á láglendi og neðan 300 m. Mest uppsöfnuð úrkoma síðasta sólarhringinn var í Ólafsfirði rúmlega 130 mm en talsvert minna hefur safnast í Siglufirði eða um 46 mm.

Slökkvilið Fjallabyggðar er á vettvangi og er byrjað að dæla eins og myndir sem Guðmundur Ingi Bjarnason tók fyrir skömmu af vatnavöxtunum sýna.