Hallfríður Nanna Franklínsdóttir var bólusett gegn COVID-19 í gær á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði.
Hallfríður Nanna Franklínsdóttir eða Nanna Franklín eins og Siglfirðingar jafnan nefna hana er næstelsti Íslendingurinn en jafnframt elsti íbúi á Norðurlandi.
“Hún kveðst ánægð með bólusetninguna og starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar segir jákvætt að aldursforsetinn hafi ákveðið að láta bólusetja sig, það setji mikilvægt fordæmi” segir á Mbl.is.
Nanna dvelur nú á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði. Hún fæddist 12. maí 1916 að Litla-Fjarðarhorni í Kollafirði í Strandasýslu og er því 104 ára.