Stefanía Steinbítur, hellaköfun eða kafað í loðnutorfu www.sjavarlif.is

Erlendur Bogason kafari hefur um langt árabil safnað myndum af sjávarlífverum og hafsbotni. Á vefnum sjavarlif.is er birt einstakt myndefni sem hann hefur tekið neðansjávar við Íslandsstrendur.

Erlendur mun kynna vefinn og það efni sem þar er að finna á sérstakri sýningu á Fiskideginum mikla á Dalvík laugardaginn 12. ágúst n.k. milli kl. 11og 17 meðfram ferskfiskasýningunni sem sett er upp í Allahúsinu Ránarbraut.

Erlendur verður á staðnum ræðir við og fræðir gesti ásamt því að mörg af hinum merku myndböndum sem Erlendur hefur tekið neðansjávar munu rúlla á skjám. Má þar nefna myndbönd um; Flakið við Hrísey, Hvernig ferðast fiskar, Söguna um Stefaníu steinbít, Kafað í loðnutorfu og Hellaköfun í Vestmannaeyjum.

Mynd/skjáskot úr myndbandi