Norðlenska flugfélagið Niceair mun fljúga til Tenerife í nóvember og desember.

Flogið verður þangað á 11 daga fresti og verða einnig aukaflug um jólin. Eftir áramót verður flogið vikulega til Tenerife til 22. mars 2023. Hægt er að bóka nú þegar.

Í sumar flýgur Niceair til Kaupmannahafnar, London og Tenerife og næsta vetur mun Manchester í Englandi bætast við.