Sjúkrahúsið á Akureyri hefur verið sett á óvissustig. Í frétt á vef sjúkrahússins segir.

“Eins og kunnugt er hefur verið mikið álag á Sjúkrahúsinu á Akureyri og hefur álagið farið vaxandi undanfarnar vikur. Það á sér margar skýringar en fyrst ber að nefna að innlögnum sjúklinga hefur fjölgað og mannekla hefur verið viðvarandi.

Því hefur verið ákveðið að setja Sjúkrahúsið á Akureyri á óvissustig og kemur það til vegna þess að gjörgæsludeild spítalans getur illa tekið við fleiri sjúklingum og mönnun þar er verulega ábótavant. Þá er einnig mikill skortur á hjúkrunarfræðingum á spítalanum.
Staðan verður endurmetin daglega”.