Ofhitnun hunda. Hundar kæla sig eingöngu niður með tungunni/öndun. Þeir eru viðkvæmir fyrir hreyfingu í hita og stórhættulegt að skilja þá (og aðra ferfætlinga) eftir í lokuðum bíl í hlýju veðri.

Rifa á glugga hefur ekkert að segja og stilla miðstöð á kælingu bregst. Hitinn í bílnum stígur hratt og dýrið er algjörlega bjargarlaust. Hundar sem ofhitna og standa á öndinni eftir hreyfingu eða leik í hita verður að kæla niður með vatni sem fyrst.

Ef um krampa er að ræða verður hundurinn að komast strax til dýralæknis samhliða kælingu (vefja hann td með blautu handklæði).

Það hafa komið til okkar nokkrir hundar í hitasjokki nú undanfarna daga og einn nær dauða en lífi segir á facebooksíðu Dýraspítalans Lögmannshlíð á Akureyri.