Kjúklingasúpa
- 1 msk ólívuolía
- 1 rauð paprika
- 3 úrbeinuð kjúklingalæri
- smá salt og pipar (6 hringir á piparkvörninni er passlegt)
- 2 msk ólívuolía
- 1/4 laukur
- 1/3 rautt chilli (sleppið fræjunum ef þið viljið hafa súpuna milda)
- 1 hvítlauksrif
- 1/2 dós (200 g) hakkaðir tómatar
- 5 dl vatn
- 1 kjúklingateningur
- 1 grænmetisteningur
- 6 hringir á piparkvörninni
- smá salt
- 1-2 tsk paprikukrydd
- 2 msk limesafi
- 2 handfylli fersk basilika
- 2 handfylli spínat
Hitið ofn í 200° og smyrjið lítið eldfast mót með ólífuolíu. Skerið paprikuna í tvennt og takið kjarnann úr. Leggið paprikuna með hýðið upp (sárið niður) í eldfasta mótið. Saltið og piprið kjúklinginn og leggið í mótið með paprikunni. Setjið í ofninn í um 25 mínútur. Látið kólna örlítið og takið svo hýðið af paprikunni. Skerið paprikuna og kjúklinginn í strimla og leggið til hliðar.
Skerið laukinn í bita og fínhakkið chillíið. Hitið olíu í potti og steikið lauk, chillí og pressað hvítlauksrif við vægan hita. Bætið vatni, teningum, papriku, kjúklingi og tómötunum (ásamt safanum) í pottinn og látið sjóða saman. Smakkið til með paprikukryddi, limesafa, salti og pipar.
Grófhakkið basiliku og spínat og bætið í súpuna þegar hún er borin fram.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit