Títan díoxíð er aukefni sem hefur verið notað í ýmis matvæli sem litarefni, til að gefa hvítan lit.
Reglugerð sem bannar notkun aukefnisins við framleiðslu matvæla í ESB var sett þar 14. janúar sl. Þessar reglur voru innleiddar hér á landi 9. febrúar sl. Matvælafyrirtæki á Íslandi þurfa því einnig að hætta notkun efnisins.
Notkun aukefnisins títan díoxíð (E 171) við framleiðslu matvæla er óleyfileg í hér á landi frá og með 3. mars n.k. Setja má á markað matvæli sem eru framleidd fyrir þann tíma fram til 7. ágúst n.k. og mega þau vera á markaði þar til geymsluþolstími þeirra er liðinn.
Ástæða þessara breytinga er að í fyrra komast Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) að þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt að útiloka skaðleg áhrif efnisin á erfðaefni manna.
Ítarefni:
- Reglugerð um bann við notkun titan díoxíðs
- Frétt Matvælastofnunar frá 6.5.2021 um nýtt áhættumat fyrir títan díoxíð
- Fréttatilkynning EFSA um endurmat á títan díoxíði