Dagana 6. – 20. október sl. fór fram kosning um nafn á tveimur nýjum götum í frístundabyggð við Varmahlíð en sveitarfélagið auglýsti eftir tillögum frá íbúum um heiti á götunum samhliða auglýsingu á tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðarinnar.
Fjölmargar tillögur bárust og gafst almenningi svo tækifæri til þess að kjósa um nafn.
Niðurstaða kosningarinnar er á þann veg að fyrir götu A hlaut nafnið Reykjarmóar flest atkvæði og fyrir götu B hlaut nafnið Reykjarmelur flest atkvæði. Er því ljóst að nýju göturnar fá nöfnin Reykjarmóar og Reykjarmelur.