Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af lasagne frá Kjötkompaní vegna þess að það fannst aðskotahlutur í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu;

  • Vörumerki: Kjötkompaní
  • Vöruheiti: Lasagne
  • Framleiðandi: Kjötkompaní, Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetning: Best fyrir 18.5.2024
  • Geymsluskilyrði: Kælivara 0-4°C.
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar