Ný vefsíða bókasafns Fjallabyggðar hefur nú litið dagsins ljós.

Inn á síðuna verða reglulega settar fréttir frá fjölbreyttu starfi safnsins.

Nýmæli er að nú geta viðskiptavinir bókasafnsins og aðrir áhugasamir séð myndir af nýjum bókum sem bókasafnið kaupir inn.

Þannig geta viðskiptavinir safnsins alltaf fylgst með því hvað er til.

Fólk er hvatt til að skoða nýju vefsíðuna.

Sjá vefsíðu Bókasafns Fjallabyggðar