Félag ráðgjafarverkfræðinga, Mannvirki – félag verktaka og Samtök arkitektastofa með stuðningi Framfararsjóðs Samtaka iðnaðarins hafa stigið stórt skref með útgáfu á nýjum viðmiðum við gerð kostnaðaráætlana verklegra framkvæmda í mannvirkjagerð á Íslandi.

Opnaður hefur verið nýr vefur, kostnadur.is, þar sem hægt er að nálgast gögnin.

Útfærsla kostnaðaráætlana hefur hingað til ekki verið samræmd hér á landi þar sem hver hagaðili á markaðnum hefur komið sér upp sínu eigin verklagi við gerð og greiningu kostnaðaráætlana. Með útgáfu þessarar nýju aðferðarfræði er því stigið framfaraskref í að samræma gerð kostnaðaráætlana til að tryggja sama skilning og aðferðir við gerð þeirra, auk þess að tryggja aukinn rekjanleika kostnaðaráætlana við framúrkeyrslu verklegra framkvæmda. Útgáfan er ætluð verktökum, ráðgjöfum, verkfræðingum, hönnuðum og ekki síst verkkaupum, hvort heldur eru opinberir verkkaupar eða verkkaupar á almennum markaði.

Markmiðin með útgáfunni:

Skapa sameiginlegan skilning á markaðnum, hugtökum og orðskýringum

Búa til viðmið til að meta hversu vel umfang verkefnis er skilgreint

Auka rekjanleika á framúrkeyrslu

Mynd/BIG

Myndin er tekin þegar vefurinn kostnadur.is var opnaður, talið frá vinstri, Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Colas Ísland og formaður Mannvirkis – félags verktaka, Ólafur Ágúst Ingason, sviðsstjóri hjá Eflu, Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna, Reynir Sævarsson, formaður Eflu og Félags ráðgjafarverkfræðinga, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Halldór Eiríksson, arkitekt hjá T.ark og formaður Samtaka arkitektastofa, og Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.