Nýir grenndargámar hafa verið settir upp við flokkunarstöðvar sveitarfélagsins á Ránargötu á Siglufirði og á Námuvegi á Ólafsfirði. Tekið er á móti þremur úrgangsflokkum: Málmum, gleri og textíl.
Málmar
- Í málmagáminn fara meðal annars umbúðir úr málmi, sprittkertabikarar og málmlok af krukkum.
- Til að tryggja sem besta endurvinnslu er mikilvægt að skola allar matarleifar úr málmumbúðum.
- Allt efni á að fara laust í tunnuna ekki í lokuðum pokum
- Ekki má setja raftæki, gaskúta eða kolsýruhylki í þennan flokk. Gaskútar og kolsýruhylki kunna að bera skilagjald og má skila þeim á flestar bensínstöðvar og til gasdreifingaraðila.
Gler
- Í glergáminn má meðal annars setja flöskur, glerumbúðir og krukkur (takið málmlok af).
- Ílát þurfa að vera tóm og hrein.
- Allt efni á að fara laust í tunnuna ekki í lokuðum pokum
- Setjið lok og tappa með málmum eða plasti eftir því sem við á.
- Í þennan flokk má ekki setja postulín, keramik eða önnur steinefni.
Textíll
- Textíllinn sem settur er í textílgámana fer í endurvinnslu og er ekki flokkaður til frekari endurnýtingar.
- Mikilvægt er að textíll sé í lokuðum pokum.
Myndir/ Fjallabyggð