Hefðbundin kennsla fellur niður í Menntaskólanum á Tröllaskaga eftir kl. 10:30 miðvikudaginn 12. september þegar skólinn gerir sér dagamun til að bjóða nýnema skólans velkomna.
Góðir gestir munu koma í heimsókn og líf og fjör verður vonandi bæði úti og inni.
Á nýnemadeginum verður keppt í sápubolta (ef veður leyfir), hægt verður að fara í sund og prófa ýmislegt innanhúss.
Tölvuklúbburinn kynnir starfsemi sína og nemendur MTR hafa tækifæri á að kynnast stefnumálum þeirra sem bjóða sig fram til setu í nemendaráði Nemendafélagsins Trölla. Í kjölfarið hefst svo rafræn kosning fyrir nemendur í nemendaráð MTR.
Að sjálfsögðu verða veglegar veitingar að hætti Bjargar.
Frétt og mynd: MTR