Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Selmu Barðdal Reynisdóttur í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.
Selma hefur starfað sem sérfræðingur í ytra mati og eftirliti á skrifstofu greininga og fjármála í mennta- og barnamálaráðuneytinu frá því í apríl 2024. Áður starfaði hún sem fræðslustjóri hjá Sveitarfélaginu Skagafirði á árunum 2018–2024 og sem ráðgjafi í fagráði eineltismála hjá Menntamálastofnun 2018–2021. Selma starfaði einnig hjá Sveitarfélaginu Skagafirði sem skólafulltrúi og uppeldis- og sálfræðiráðgjafi á árunum 2007–2018.
Selma er með MPA-gráðu í opinberri stjórnsýslu og diplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hún er með Kandídatsgráðu í uppeldis – og sálfræðiráðgjöf frá Danmörku og B.Ed-gráðu í almennum kennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands.
Alls sóttu fimm um embættið.
Mynd/aðsend