Þann 11. október kom saman nýr stýrihópur um heilsueflandi samfélag í Fjallabyggð.
Fundarmenn undirrituðu drengskaparheit um þagnarskyldu og Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála bauð fundarmenn velkomna og fór yfir skipun stýrihópsins.
Í stýrihópi um Heilsueflandi samfélag sitja fyrir tímabilið 2022 – 2026 eftirfarandi fulltrúar:
Fyrir leik- og grunnskóla:
Aðalmaður: María Bjarney Leifsdóttir.
Varamaður: Björk Óladóttir.
Fyrir heilsugæslu,
Aðalmaður: Guðrún Helga Kjartansdóttir.
Varamaður: Dagný Sif Stefánsdóttir.
Fyrir félög eldri borgara,
Aðalmaður: Ingvar Guðmundsson.
Varamaður: Björn Kjartansson.
Fyrir íþróttahreyfinguna (UÍF)
Aðalmaður: Arnheiður Jónsdóttir.
Varamaður: Anna Þórisdóttir
Fyrir Fjallabyggð
Ríkey Sigurbjörnsdóttir.
Stýrihópurinn ákvað fundartíma á þriðjudögum kl. 14:30 – 15:45, 6 til 8 fundi á ári.
Fundarstaður: Til skiptis í Ráðhúsi Fjallabyggðar og í Ólafsvegi 4 Ólafsfirði.
Næsti fundur er áætlaður þriðjudaginn 15. nóvember 2022 í Ólafsvegi 4.