Á morgun, fimmtudaginn 14. okt. hefur göngu sína nýr þáttur á FM Trölla.
Þátturinn nefnist “Allt milli himins og fjarðar”.
Þetta er skagfirskur spurninga- og spjallþáttur sem verður á dagskrá FM Trölla annnan hvern fimmtudag kl 10:30.
Þáttastjórnendur eru: Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Eysteinn Ívar Guðbrandsson.
Tæknimaður: Sigfús Arnar Benediktsson
Hlustið á “Allt milli himins og fjarðar” á FM Trölla, annan hvern fimmtudag kl. 10:30.
FM Trölli næst á FM 103.7 í Eyjafirði, á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.
Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is