Ný Torfunefsbryggja var formlega tekin í notkun í morgun þegar togarinn Björg EA lagðist að bryggju. Með því hefur nýtt og spennandi hafnarsvæði verið opnað í hjarta bæjarins, þar sem fólk getur komið saman og notið þess að vera í nálægð við hafið.

Á svæðinu er gert ráð fyrir fjölbreyttri starfsemi, þar á meðal veitingastöðum og verslunum. Minni skemmtiferðaskip, svokölluð „expedition“-skip, geta einnig lagt að bryggju. Fyrsta slíka skipið, Le Champlain, er væntanlegt að kvöldi föstudags þegar það siglir inn Eyjafjörðinn.

Framkvæmdir við bryggjuna hófust snemma árs 2023 og sá verktakinn Árni Helgason ehf. um framkvæmdina. Að deiliskipulagi svæðisins stóðu Nordic Office of Architecture í samstarfi við Hafnasamlag Norðurlands. Svæðið markar tímamót í þróun hafnarsvæðisins á Akureyri og styður við framtíðarsýn um fjölnota samkomusvæði þar sem náttúra og borgarumhverfi mætast.

Fjölmenni mætti við opnunina og hélt Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri stutt ávarp af þessu tilefni.

Mynd/Akureyrarbær