Fjölbreytt hátíðardagskrá verður í Fjallabyggð á þjóðhátíðardaginn 17. júní. 

Á Siglufirði, við Siglufjarðarkirkju og á Rauðkutorgi verður stórglæsileg hátíðardagskrá og er dagskráin í höndum Ungliðasveitarinnar Smástráka í ár

Hátíðarathöfn hefst við Siglufjarðarkirkju kl. 12:00-12:30 en þar mun  nýstúdent, Celina Borzymowska, leggja blómsveig að minnisvarða sr. Bjarna Þorsteinssonar. Að þeirri athöfn lokinni eru gestir hvattir til að ganga að Þjóðlagasetri sr. Bjarna þar sem boðið verður upp á kaffi og með því allan daginn en opið verður í Þjóðlagasetri til kl. 18:00. 

Frá kl. 13:00 hefst svo formleg hátíðardagskrá við Rauðkutorg þar sem flutt verður hátíðarræða, ávarp Fjallkonu og tónlistaratriði.
Boðið verður upp á dorgveiðikeppni á Togarabryggjunni og Mínigolfeppni á Rauðkutorgi. Verðlaun verða veitt í báðum keppnum.

Aparóla verður frá Suðurgötu að Snorragötu, hoppukastalar á Rauðkutorgi,  sölutjöld og margt fleira skemmtilegt fyrir alla krakka.

UMF Glói verður með árlegt 17. júní hlaup á Malarvellinum á Siglufirði fyrir börn fædd 2016 – 2011 og hefst hlaupið kl. 11:00.

Klukkan 13:30-15:00 býður Slökkvilið Fjallabyggðar gestum og gangandi að skoða tæki slökkviliðsins og reistur verður vatnsveggur svo munið pollagallann !

Síldarminjasafnið verður opið frá 10:00-18:00 og Ljósmyndasögusafnið Saga-Fotografica frá kl. 13:00-16:00. Þar er að finna m.a. sýningu Rutar Hallgrímsdóttur, RAX og fleiri. Nýjar myndavélar og margt fleira áhugavert að skoða. Safnið verður opið alla daga í sumar frá kl. 13:00-16:00.

Í Kompunni, Alþýðuhúsinu verður sýning Níelsar Hafstein – sýningin Brennuvargar  frá kl. 14:00-17:00 og einnig verða verk eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur til sýnis í anddyri Alþýðuhússins.

Í Ólafsfirði verður Kaffi Klara með Hátíðarbröns milli 11:00 og 13:30 og sýningin Djúpið verður opin frá 10:00-17:00. Í Pálshúsi er sýning Unu Margrétar Árnadóttur – Tánögl opin og safnið einnig frá kl. 13:00-17:00.

Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til að mæta og fagna þessari hátíðarstund saman. Rútuferðir verða milli bæjarkjarna frá íþróttamiðstöðinni Ólafsfirði kl. 11:35 og 12:30 og frá Ráðhústorginu Siglufirði kl. 16:15 og 17:00