Félagsmenn Einingar-Iðju sem starfa hjá eða hættu störfum hjá sveitarfélögum á síðasta ári eða á árinu 2020, ATHUGIÐ!

Í síðasta kjarasamningi við sveitarfélögin var samið um og stofnaður sérstakur félagsmannasjóður. Atvinnurekandi greiðir mánaðarlegt framlag í sjóðinn sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanna og verður greitt úr sjóðnum 1. febrúar ár hvert. Grein 13.8 í samningi Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga fjallar um félagsmannasjóðinn.

Greiðslur á árinu 2022, vegna ársins 2021
Félagsmenn sem starfa núna eða störfuðu hjá sveitarfélagi á árinu 2021 munu fá greitt úr félagsmannasjóði 1. febrúar 2022. Nýir starfsmenn og þeir sem vilja breyta upplýsingum um bankareikninga þurfa að gefa upp reikningsupplýsingar til að tryggja að greiðsla úr sjóðnum berist til þeirra. Hægt er að skrá reikningsupplýsingar á heimasíðunni www.sgs.is undir flipanum Félagsmannasjóður.

Greiðslur vegna ársins 2020
Allir félagsmenn Einingar-Iðju sem störfuðu hjá sveitarfélagi á félagssvæðinu á tímabilinu frá 1. febrúar 2020 til 31. desember 2020 áttu að fá greitt úr félagsmannasjóði SGS 1. febrúar 2021. Þeir sem ekki hafa fengið greitt frá félagssjóði fyrir árið 2020 þurfa að gefa upp reikningsupplýsingar til að tryggja að greiðsla úr sjóðnum berist til þeirra. Hægt er að skrá reikningsupplýsingar á heimasíðunni www.sgs.is undir flipanum Félagsmannasjóður.

Sjá nánar: Hér

Mynd/mynd pixabay