Brjóta blað í upplýsingagjöf til ferðalanga um Ísland

Markaðsstofur landshlutanna ýta úr vör langstærsta samstarfsverkefni sem samtökin hafa ráðist í. Verkefnið er mikilvægur hlekkur í enduruppbyggingu ferðaþjónustunnar í kjölfar heimsfaraldurs. 

Markaðsstofur landshlutanna, MAS, ýttu í dag úr vör samstarfsverkefni sem miðar að því að auðvelda og hvetja enn frekar til ferðalaga innanlands. Verkefnið er liður í að auka á dreifingu ferðamanna um landið sem og styðja við uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu í kjölfar heimsfaraldurs. Þetta er langstærsta verkefni sem MAS hefur ráðist í. 

Verkefnið ber yfirskriftina Upplifðu og er sannkölluð stafræn bylting þegar kemur að skipulagningu ferðalaga um Ísland sem og einstök upplýsingagátt. Allar sex markaðsstofur landshlutanna, Markaðsstofa Vesturlands, Markaðsstofa Vestfjarða, Markaðsstofa Norðurlands, Austurbrú, Markaðsstofa Reykjaness og Markaðsstofa Suðurlands sameinast í verkefninu. 

Um ræðir gagnvirkt vefsvæði, www.upplifdu.is þar sem notendum gefst kostur á að sníða ferðalagið nákvæmlega eftir sínu höfði og fá aðstoð við að sjá hvað er í boði á hverjum stað, fá nákvæma tímaáætlun milli áfangastaða og síðast en ekki síst, uppgötva nýja möguleika á myndrænan hátt. 

Arnheiður Jóhannsdóttir

„Lengi hefur verið kallað eftir aðgengilegri lausn þar sem auðveldlega er hægt að sjá hvaða tækifæri allir landshlutar hafa upp á að bjóða og því frábært að geta nú ýtt þessu verkefni úr vör með stuðningi úr Sóknaráætlunum landshlutanna. Verkefnið var fyrst ætlað erlendum markaði en stóraukin eftirspurn Íslendinga eftir áreiðanlegum upplýsingum um ferðatækifæri varð til þess að ákveðið var að byrja á að setja síðuna í loftið á íslensku en í haust mun sama kerfi fara í loftið á ensku, ” segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. 

Upplifðu.is brýtur þar með blað í sögu upplýsingagjafar til ferðalanga um Ísland en ekki eru fordæmi fyrir viðlíka gagnvirkri síðu með jafn yfirgripsmiklar upplýsingar á fjölmörgum sviðum ferðaþjónustu á Íslandi. Þróun og framleiðsla er í höndum framleiðslustofunnar Tjarnargötunnar og er myndefnið sem prýðir síðuna unnið úr einum stærsta myndabanka sem gerður hefur verið úr efni frá Íslandi.  

„Þessi opnun kerfisins er aðeins fyrsta útgáfa og verður stöðugt hægt að bæta við myndefni og upplýsingum eftir þörfum. Ferðaþjónustan hefur staðið þétt saman að ýmsum markaðsverkefnum í gegnum árin og hefur aldrei verið mikilvægara en nú í ár enda ljóst að mikinn kraft þarf til þess að byggja ferðaþjónustuna hratt upp aftur. Þetta kerfi er mikilvægur hlekkur í  að vekja athygli á áhugaverðum ferðamannastöðum um allt land og auka þannig dreifingu ferðamanna um landið. Markaðsstofur landshlutanna munu halda áfram að vinna að aukinni kynningu á öllu landinu og er vefurinn Upplifdu.is mikilvægt tæki til að ná fram þeim sýnileika sem þarf til lengri tíma, auk þess sem hann bætir til muna aðgengi að þjónustu og afþreyingu. Það er von Markaðsstofa landshlutanna, að síðan muni nýtast vel og hvetja Íslendinga til ferðalaga um allt land,” segir Arnheiður. 


Allar frekari upplýsingar veitir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands
í síma 864 6786

Viðbót um virkni síðunnar: 

Síðan er einföld í notkun og miðar að því að sem flestir geti nýtt sér hana. Notendur velja sér upphafspunkt ferðalags og geta svo séð hvað er í boði á hverjum þeim stað sem heillar og handvelja hvað skuli heimsækja og hvaða afþreyingu og þjónustu skuli nýta meðan á heimsókn stendur. Hægt er að velja þar til gerðar síur til að auðvelda enn frekar skipulagningu ferðarinnar og eru þær síur þrjár; staðir, afþreying og þemu. Sían staðir nær til að mynda yfir kirkjur, fornminjar, útsýni, gil og gljúfur, jökla og hella. Afþreying yfir baðstaði, hvalaskoðun, matarupplifanir, hjólaferðir, golfvelli, dýragarða ofl. Þemun endurspegla svo tegund ferðar, fjölskylduferð, ævintýraferð, söguslóðir, afslöppun, menningu, dýralíf eða náttúru. 

Þegar búið er að velja eru óskir ferðalangsins dregnar saman og úr verður heildstæð ferðaáætlun í formi myndbands sem og skjals, sem nær ekki aðeins utan um spennandi ferðalag heldur einnig utan um hagnýta hluti eins og lengd aksturs milli áfangastaða og áætlaðan tíma í hverri afþreyingu. 

Sjá enn frekar : www.upplifdu.is 

Aðsent.